Þjónusta        Fræðsla og námskeið        Um stofuna        Starfsfólk
Fagleg nálgun þegar upp koma kvartanir um erfið samskipti 
Vinnustofa fyrir stjórnendur og mannauðsfólk

Ágreiningur og samskiptavandi eru gjarnan flókin verkefni  og geta haft mikil áhrif á alla viðkomandi. 
Þá eru fagleg viðbrögð mjög mikilvæg svo unnt sé að leysa málin á farsælan hátt. 

Á þessari vinnustofu er fjallað um gagnsemi skýrra verkferla og stefnu, farið skref fyrir skref yfir 
faglegt verklag og hlutverk stjórnanda og annarra í slíkum málum. Þá verður einnig litið til helstu 
álitaefna og mögulegra hindrana sem kunna að mæta stjórnendum og mannauðsfólki. 
Unnið er verkefni þar að lútandi og áhersla lögð á hvernig styðja má við starfshópinn og
einstaklingana á erfiðum tímum.

Lengd 3-6 klst


Hafa samband

Helstu efnistök:

Gagnsemi skýrra verkferla og stefnu
Faglegt verklag og hlutverk stjórnanda
Helstu álitaefni og mögulegar hindranir



Líf & sál
Sálfræði- og ráðgjafastofa
Heimilisfang
Suðurlandsbraut 24,
108 Reykjavík
Hafa samband
511 5508
lifogsal@lifogsal.is
Fylgið okkur
Facebook
LinkedIn