Þjónusta        Fræðsla og námskeið        Um stofuna        Starfsfólk
Mannauðsráðgjöf og stjórnendahandleiðsla
Við bjóðum:
  • Handleiðslu og ráðgjöf fyrir stjórnendur.
  • Handleiðslu og ráðgjöf fyrir starfshópa. 
  • Einstaklingshandleiðslu fyrir starfsfólk. 

Handleiðsla getur verið tímabundin vegna tiltekinna aðstæðna eða verkefna, eða náð yfir 
lengri tíma sem liður í starfsþróun viðkomandi einstaklings eða starfshóps.

Stjórnendur
Algengt er að stjórnendur leiti til okkar eftir handleiðslu og ráðgjöf vegna tímabundinna 
erfiðleika í starfshópnum, breytinga sem framundan eru, eða til að styrkja sig í einstökum
þáttum stjórnandahlutverksins.

Í stjórnendahandleiðslu er fjallað um hvaðeina sem snertir starf stjórnandans. Þar sem við 
á er veittur stuðningur við úrlausn ágreiningsmála, aðstoð við greiningu á styrkleikum og 
veikleikum í starfsmannahaldi, skipulagi og uppbyggingu fyrirtækja og stofnana.

Þó utanaðkomandi ráðgjöf sé mikilvæg fyrir alla stjórnendur, getur hún þó verið sérstaklega 
brýn ef erfiðleikar steðja að, eða fyrir þá sem nýlega hafa tekið við stjórnunarstarfi.

Stuðningur við starfsfólk
Stjórnendur geta kosið að fá utanaðkomandi handleiðslu fyrir starfsfólk af ýmsum ástæðum. 
Vegna krefjandi starfa, áfalla eða annarra erfiðleika sem hafa áhrif á líðan.

Starfshópar
Við ýmsar aðstæður getur verið gagnlegt fyrir starfshópa að fá utanaðkomandi handleiðslu. 
Má þar nefna vegna álags, krefjandi samskipta við viðskiptavini, breytinga og áfalla.

Við hjá Lífi og sál höfum langa reynslu af handleiðslu og ráðgjöf til einstaklinga og hópa og 
leggjum áherslu á að laga störf okkar að þörfum hvers viðskiptavinar.




Hafa samband





Líf & sál
Sálfræði- og ráðgjafastofa
Heimilisfang
Suðurlandsbraut 24,
108 Reykjavík
Hafa samband
511 5508
lifogsal@lifogsal.is
Fylgið okkur
Facebook
LinkedIn